Á fallegasta gullmolann!!! Voila:)

Fór í banka ekki banka...

10.12.2006 20:40:29 / villa

Myndskilabo

DSC02715.JPG Skìrnir ad horfa à gùmmìbangsa à kvikmynd.is mælir alveg med honum:-)

» 6 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 01:00:12 / villa

Myndskilabo

DSC02681.JPG Litli stràkurinn minn sofandi med Tigrann sinn ì Rvk. Erum hjà Unu frænku & fjölsk. Arnars jà og Skìrnis... Vorum ì eyjum um helgina ì jardarför og erum à nordurleid fljòtlega:-) Kv. Vilborg!

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 00:48:02 / villa

Myndskilabo

DSC02632.JPG Sætilìusinn minn!

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 00:04:11 / villa

..........................

Jæja kominn tími á almennilegt blogg hérna. Ætla að koma með nokkra gagnlega punkta.

  • Arnar er farinn á sjóinn aftur:(:(:( fór fyrir viku síðan og kemur ekki aftur fyrren eftir vel rúma viku... Slæmt en gæti verið verra þó...
  • Karen systir fór á kostum í dag... Var að koma heim úr skólanum kemur inn og byrjar að halda ræðu um það að ég sé nú sennilega að kæfa Skírni þarna úti í vagni það komist nú sennilega bara ekkert loft að honum og ég veit ekki hvað og hvað... Svo eftir um það bil korters ræðu tók hún eftir því að Skírnir lá á gólfinu beint fyrir framan tærnar á henni:haha:...
  •  Útlandaferðin var rosalega fín. Ég hreinlega elska Kaupmannahöfn og er að spá í að fara þangað á hverju ári...
  • Ég keypti ekki mikið á mig ef ég væri ca bát 15 kg léttari hefði ég alveg verið til í að missa mig. Eeeeeeennn þau eru þarna og eru held ég ekkert að fara alveg strax...
  • Laufey mín og Rúnar fara alveg að koma heim:haha: hlakka mikið mikið til að heyra alla ferðasöguna og sjá myndir.
  • Barnuppeldið gengur rosalega vel... Lífið gæti ekki verið ljúfara alveg æðislegt. Held að ég eigi fallegasta strák í öllum heiminum:haha::haha:
  • Unglingauppeldið gengur líka nokkuð vel. Ég mæti á foreldrafundi í skólanum og lækka þar með meðalaldurinn um nokkur ár:haha:,  ég læt hana læra þegar hún kemur heim úr skólanum (þegar Arnar er heima sér hann um það:haha:), ég læt (reyni) að láta hana fara að sofa á skikkanlegum tíma á kvöldin og man oftast eftir að kaupa handa henni nesti:S
  • Það er að koma vetur... Brrrr. ekki spennandi. Þetta sumar leið hjá án þess hreinlega held ég að ég hefði tekið eftir:) svo upptekin af Skírni Daða:haha::haha:

Jæja ekki lengra í bili. Eins og þeir sem eru skarpir sjá er komið nýtt útlit á síðuna helv... rokkað bara og ný skoðanakönnun líka:)

Kveð að sinni Vilborg súpermamma.


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 12:28:02 / villa

DSC00156

DSC00156.jpeg Jæ Köben búin ad vera ædi sól & og sumarylur! Erum ad fara í flug heim í kvöld sjáumst mjög fljótlega hilsen frá öllum kossar & knús Kv. Skírnir Dadi kaffihúsa töffari, mamman & pabbinn!

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 17:36:01 / villa

Lífid í Köben er ædislegt! Litli madurin

DSC00151.jpeg Lífid í Köben er ædislegt! Litli madurinn búin ad fá mest en mamman ekkert búin ad fá á sig:/ erum á leidinni á steikhús Jensen's Bofhus... Vilberg frændi og Bjarney eru rétt ókomin til okkar sídasta kvöldid okkar verdur tekkid med trompi annad kvöld í Tivoli fórum í fyrradag og ég var mjög hugrökk og fór í fallturn, rússíbana og gedbilada rólu bara gaman. Jæja ekki fleira í bili frá Köben. Kv. Vilbog... P.s. Hittum Halla heimilislausa í dag á strikin og pabbi spjalladi vid kauda og hann var helvíti hress!

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.09.2006 19:26:02 / villa

Töffari á veitingastad í Köben! Ædislegt

DSC00143.jpeg Töffari á veitingastad í Köben! Ædislegt vedur og rosa stud!

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 16:54:01 / villa

Ein s?t af okkur m?dginunum!

DSC00106.jpeg Ein sæt af okkur mædginunum!

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.09.2006 23:54:02 / villa

Öflugasti bloggar ever!!!

Já ég er ekki frá því að ég sé með þeim öflugri sko...

Ætla að koma með nokkra punta ég er aðalega í því þessa dagana að skrifa í vefdagbókina hjá Skírni Daði og er ekki að nenna að koma með eitthvað hérna líka en hér kemur smá.......:$.......

  • Búin að komast að því að það þarf BA gráðu í vísindum til að kaupa sér teyjulak í Rúmfatalagernum... Ef einhver vill gera mig pirraða getur hann spurt mig nánar út í þetta...
  • Eftir viku verð ég að spóka mig um á götum Kaupmannahafnar...
  • Arnar er í sínum síðasta:haha: :D veiðitúr þessa sumar í Hölkná í Þystilfirði...
  • Ég hef hlotið besta hlutverk sem hægt er að hugsa sér og það er að verða mamma;)
  • Jóka eignaðist dásamlegan dreng síðastliðinn sunnudag búin að fara 2svar að sjá hann og hann er bara æði...  Til hamingju með hann elskurnar...
  • Hvern langar í kött?? Einstaklega ljúfur og góður köttur og fer ekkert úr hárunum:lol:
  • Ég ætla að vera voðalega dugleg að senda ykkur hingað inn myndir utanúr Köben sýna ykkur allt það fallega sem ég er að kaupa og sonna og myndir af öllum góða matnum sem ég er að fara að borða...:o
  • Það er alveg merkilegt með mig!!!... Ég veit vel að ég er ekki mjög klár í stafsetningu svo er það annað... ég klikka svo agalega oft á því að skrifa síðasta stafinn í orðinu... Algjörlega komin framúr sjálfum mér. Veit bara ekkert hvað er málið svo líka þegar ég er að skrifa kannski skrifa ég nærri undantekningarlaust kannksi!!!
  • Karen systir býr hjá okkur og verður hjá okkur í vetur því hún var að byrja í Síðuskóla í 9 bekk... Við Arnar erum helvíti spök þegar við erum að reyna að hjálpa henni í heimalærdóminum við nefnilega vorum ekkert mestu námshestar sem til eru:P...

Þetta er orðið alveg magnað að sinni en munið þetta með teyjulökin farið állavega á námskeið ef þið hafið ekki lokið BA gráðunni án spaugs sko... ég hefði betur gert það...

Mútta Tútta er rokin veriði sæl og verið góð hvert við annað.

Borgin kveður...............


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 22:28:01 / villa

Litli madurinn er ekki alveg à tvì ad fa

DSC00088.jpeg Litli madurinn er ekki alveg à tvì ad fara ad sofa saknar lìklega bara pabba sìns sem er ì sìdasta veiditùr sumarsinns austur ì Þystilfirdi!

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 18:12:01 / villa

Ein sæt af gullinu mìnu!

DSC00077.jpeg Ein sæt af gullinu mìnu!

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 21:00:02 / villa

DSC00075

DSC00075.jpeg Vid höfum tad fìnt ì eyjunni Skìrnir Dadi fær næga athygli og Arnar bùinn ad vera ad skjòta gæsir ì allan dag! Verdum sennilega fram à tri! Er svo mikid nörd ad blogga ì gegnum sìmann svo gaman ad geta sent myndir svoleidis! Kv. Vilborg & co...

» 1 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 23:58:01 / villa

Vid erum ì eyjunni hjà afa & ömmu!

DSC00066.jpeg Vid erum ì eyjunni hjà afa & ömmu!

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 13:18:19 / villa

Lífið er ljúft...

Góðan daginn þennan mánudaginn:)

Mikið búið að vera að gera á þessu heimili undanfarna daga og lítill tími til að skrifa eitthvað hér inn... Svona það sem helst er að frétta er að við vorum að skíra litla strákinn okkar í gær og fékk hann nafnið Skírnir Daði.  Skírnin var í Akureyrarkirkju kl 14 var ég umþað bil að farast úr taugum:^) í gærmorgunn fannst ég eiga eftir að gera alltof mikið og svo þegar ég var spurð hvað væri eftir þá gat ég ekkert skipað fyrir:(. Alveg róleg eða hitt þó. Svo var veisla haldin í Gamla Lundi og kom þangað rúmlega 50 manns og var það bara alveg rosalega gaman og mikið borðað af allavega kræsingum sem ég, mamma, tengdó, Amma í óló gerðum og svo var hún Rósa svo góð að gera fyrir mig góða góða salatið:haha:.

Skírnir Daði fékk alveg rosalega mikið af fallegum gjöfum þannig að fjallið minkaði ekki í gær. Allavega vorum við alveg rosalega ánægð með daginn. jæja ætlaði bara að láta vita af mér og mínum. Litli töffarinn situr í fanginu á pabba sínum núna og er klæddur í gallabuxur og hettupeysu og var að loka augunum... (erfitt að vera svona töffari)...

Kv. Vilborg  


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 12:48:23 / villa

Gleði, gleði, gleði:)

jæja lífð gæti ekki verið ljúfara þessa dagana indislegur prins kominn í heiminn eins og þið vitið væntanlega öll:haha:

Drengurinn dafnar rosalega vel og ég er hin sprækasta hann er 9 daga gamall í dag valdi sér alveg rosalega flottann dag til að koma í heiminn 26.06.06 fæðingin gekk mjög vel eða allavega svona þegar ég hugsa til baka auðvita var þetta puð á meðan á því stóð en maður er fljótur að gleyma því.  Arnar er að falla alveg rosalega flott inn í pabbahlutverkið og eru þeir feðgar algjört æði saman:haha::haha: Allir sem sjá hann segja að hann sé alveg eins og pabbi sinn og er pabbinn alveg að rifna úr monti þegar það er sagt enda svo fallegur lítill drengur á ferð... Við erum náttúrulega bara að taka því rólega þessa dagana og er mér alveg sama þó það sé algjör blíða úti ég hef miklu meiri blíðu hérna inni hjá mér:lol: ég er búina að setja tengil á síðuna hans hérna til hliðar endilega að kíkka á hann alveg þess virði...

Jæja nóg að gera á stóru heimili kveð í bili Vilborg stolltasta mamma í heimi!!! (leyfi mér að halda það allavega) :haha::haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7